Störf í boði
Í dag starfa yfir 450 manns hjá IKEA á Íslandi, í lifandi alþjóðlegu umhverfi. Þessi stóri samheldni hópur vinnur daglega að framgangi hugmyndafræði IKEA: „Að gera daglegt líf þægilegra fyrir sem flesta“. Fjölbreytni er lykill að velgengni! Hjá IKEA, fögnum við öllum víddum fjölbreytileikans. Við leggjum áherslu á að skapa vinnuumhverfi þar sem öll eru velkomin, virt, studd og vel metin, sama hver þau eru eða hvaðan þau koma. Við erum fullviss um að sérstaða allra einstaklinga gerir IKEA betri. Hér í IKEA leggjum við mikla áherslu á jákvæð samskipti á vinnustað og teljum sveigjanleika í starfi og samræmi milli vinnu og einkalífs vera mikilvægan þátt í starfsánægju. Starfsemi fyrirtækisins býður upp á skapandi og skemmtileg störf og mikla möguleika á að þróast og vaxa í starfi – með jákvæðni að leiðarljósi.