Öryggisfulltrúi
Enginn umsóknarfrestur
Fullt starf
Staða öryggisfulltrúa er laus til umsóknar. Um fullt starf er að ræða þar sem unnar eru dag- og næturvaktir á 5-5-4 vaktakerfi. Starfið felst í almennri öryggisgæslu, rýrnunareftirliti og eftirliti með hússtjórnarkerfum. Að auki felst í starfinu móttaka gesta auk tilfallandi starfa sem heyra undir öryggisdeild. Öryggisdeild IKEA er starfandi allan sólarhringinn, alla daga ársins og því geta vaktir lent á rauðum dögum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Öryggisgæsla (vöruvernd, rýrnunareftirlit)
- Eftirlit með öryggi starfsmanna
- Framfylgni á ákvæðum vinnuverndarlöggjafar
- Eftirlit með öryggiskerfi hússins
- Vinnsla á upplýsingum úr hússtjórnarkerfi
- Skýrslugerð vegna slysa, atburða og uppákomna í húsinu og lóð þess
- Veita fyrstu hjálp sé hennar þörf
- Söltun og mokstur
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af öryggisstörfum kostur
- Þekking á skyndihjálp kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði
- Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Stundvísi, heiðarleiki og áreiðanleiki
- Góð skipulags- og tölvukunnátta
- Bílpróf
- Vinnuvélaréttindi kostur
- Hreint sakavottorð
Umsækjendur verða að hafa náð 20 ára aldri. Sé nánari upplýsinga óskað um starfið skal beina fyrirspurnum til mannauðssviðs; radningar@ikea.is.
Tengiliður
radningar@ikea.is