Sumarstörf á veitingasviði
Enginn umsóknarfrestur
Sumarstarf
Við leitum eftir einstaklingum til starfa á veitingasviði IKEA í sumarstörf með möguleika á áframhaldandi starfi í haust. Um er að ræða bæði fullt starf og hlutastarf. Starfið felur í sér almennan undirbúning, framleiðslu, afgreiðslu og frágang á mat fyrir veitingasvið fyrirtækisins. Á veitingasviði IKEA er lögð rík áhersla á að framreiða góðan mat í starfsumhverfi þar sem samheldni og jákvætt andrúmsloft ríkir með það að markmiði að veita afburðar þjónustu til viðskiptavina.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi þjónustulund
- Lipurð í samskiptum og drifkraftur
- Íslenskukunnátta
- Frumkvæði og jákvæðni
- Áhugi á mat og matargerð kostur
Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri og hafa hreint sakavottorð. Nánari upplýsingar um starfið veitir mannauðssvið IKEA, radningar@IKEA.is
Tengiliður
radningar@ikea.is