Logo

Starf í eignaumsjón IKEA

Application deadline 27.06.2025
Full time job

Viltu vinna í umhverfi þar sem enginn dagur er eins? Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum einstaklingi til að ganga til liðs við viðhaldsteymi IKEA. Starfið snýst um umsjón og viðhald á tækjum, bifreiðum og fasteignum í eigu eða umsjón IKEA – allt með það að markmiði að tryggja gott ásigkomulag og öruggt starfsumhverfi. 

Tasks and responsibilities

  • Umsjón með snjómokstri og söltun á veturna
  • Fyrirbyggjandi viðhald og léttar viðgerðir á bílum og tækjum
  • Aðstoð við umsjón með fasteignum og útisvæðum
  • Samstarf við þjónustuaðila og verktaka
  • Önnur fjölbreytt verkefni tengd eignum IKEA

Education and qualification requirements

  • Býr yfir reynslu af viðhaldi og/eða sambærilegu starfi
  • Iðnmenntun er kostur
  • Handlaginn og lausnamiðaður
  • Getur unnið sjálfstætt og sýnir frumkvæði
  • Er með góða þjónustulund og samskiptahæfni
  • Er stundvís, áreiðanleg(ur) og vinnur fagmannlega
  • Talar íslensku og hefur grunn í ensku
  • Getur framvísað hreinu sakavottorði
  • Vinnuvélaréttindi er kostur

Benefits

  • Skapandi og skemmtileg störf og mikla möguleika á að þróast og vaxa í starfi
  • Skemmtilega vinnufélaga
  • Niðurgreiddan heilsusamlegan mat með vegan valkosti
  • Ávextir og hafragrautur í boði
  • Árlegan heilsueflingarstyrk ásamt frírri heilsufarsskoðun
  • Afslátt af IKEA vörum
  • Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvænan og heilsusamlegan samgöngumáta til og frá vinnu
  • Ýmsa viðburði á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi sem stendur fyrir reglulegum viðburðum
  • Aðgengi að sumarbústöðum til einkanota

Við hvetjum sérstaklega einstaklinga með reynslu úr viðhaldsstörfum, tæknistörfum eða eignastýringu – óháð aldri – til að sækja um. Reynslan skiptir máli og við vitum að fjölbreyttur bakgrunnur styrkir teymið okkar. 

Af hverju IKEA? 
Við trúum því að fólk sé okkar mikilvægasta auðlind. Þess vegna leggjum við áherslu á góðan starfsanda, samvinnu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Hér færðu tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu og viðhaldi á umhverfi sem skiptir máli fyrir bæði viðskiptavini og samstarfsfólk. 

IKEA sem vinnustaður 
Við viljum skapa vinnustað þar sem fólk mætir með bros á vör. Hvort sem þú ert á gólfinu, í viðhaldi eða þjónustu, þá erum við öll hluti af einu teymi. Öryggi, virðing og fagmennska eru leiðarljósin í öllu sem við gerum – og við tökum vel á móti nýjum liðsfélögum. 

Nánari upplýsingar veitir mannauðssvið (radningar@IKEA.is).   
Umsækjendur verða að hafa náð 20 ára aldri.

Contact

radningar@ikea.is